Alfreð Finnbogason
Alfreð Finnbogason
„Það er gott að Alfreð sé líka að skora gegn bestu liðunum.

„Það er gott að Alfreð sé líka að skora gegn bestu liðunum. Hann lék mjög vel að þessu sinni og var yfirvegaður þegar hann skoraði þetta mikilvæga fyrra mark,“ sagði Marco van Basten, þjálfari Alfreðs Finnbogasonar hjá Heerenveen, eftir að Alfreð skoraði í 2:0 sigri á Feyenoord í hollensku úrvalsdeildinni. Þar með færði Alfreð Kolbeini Sigþórssyni og félögum í Ajax betra forskot á toppi deildarinnar.

Þetta var 21. mark Alfreðs á leiktíðinni, en hann er næstmarkahæstur, og fimmti sigur Heerenveen í röð. Fyrir þessa sigurgöngu var liðið stigi frá fallsæti, en er nú í sæti sem gefur rétt til umspils um Evrópudeildarsæti. sindris@mbl.is