Ian Jeffs
Ian Jeffs
ÍBV varð í gær fyrsta liðið til að bera sigurorð af Víkingi Ólafsvík í leik á vegum KSÍ síðan Víkingar töpuðu fyrir Þrótti R. þann 16. ágúst í fyrra.

ÍBV varð í gær fyrsta liðið til að bera sigurorð af Víkingi Ólafsvík í leik á vegum KSÍ síðan Víkingar töpuðu fyrir Þrótti R. þann 16. ágúst í fyrra. Eyjamenn unnu 1:0 sigur á Leiknisvelli með marki Ian Jeffs en Víkingar höfðu unnið alla sex leiki sína fram að því í 1. riðli A-deildar Lengjubikarsins.

Tapið breytir ekki þeirri staðreynd að Víkingar eru komnir í 8-liða úrslit Lengjubikarsins en ÍBV á enn veika von um að komast þangað. Liðið er með 9 stig og á eftir leik við Fylki. FH, sem á eftir leik við Grindavík, og Fylkir, sem á eftir leiki við ÍBV og BÍ/Bolungarvík, eru bæði með 12 stig. sindris@mbl.is