Fjögur ungmenni um tvítugt sluppu með minni háttar áverka eftir bílveltu á Skeiðavegi um klukkan 4.30 í fyrrinótt. Talið er að ökumaðurinn hafi sofnað undir stýri. Atvikið átti sér stað skammt frá Gunnbjarnarholti.

Fjögur ungmenni um tvítugt sluppu með minni háttar áverka eftir bílveltu á Skeiðavegi um klukkan 4.30 í fyrrinótt. Talið er að ökumaðurinn hafi sofnað undir stýri.

Atvikið átti sér stað skammt frá Gunnbjarnarholti. Tveir piltar og tvær stúlkur um tvítugt voru í bifreiðinni og segir lögreglan mildi að allir skuli hafa verið í bílbeltum.