Eins manns flokkur Samfylkingin var á sínum tíma mynduð úr Alþýðubandalagi sem horfði einkum í austurveg í átt til Sovétríkjanna og Alþýðuflokknum.

Eins manns flokkur

Samfylkingin var á sínum tíma mynduð úr Alþýðubandalagi sem horfði einkum í austurveg í átt til Sovétríkjanna og Alþýðuflokknum. Manni kemur Samfylkingin fyrir sjónir eins og hver annar sértrúarsöfnuður, þar er átt við að það eina sem kemst að í höfði samfylkingarfólks er ESB og evran. Hvernig er ástandið á Írlandi sem er með evru svo ekki sé minnst á Kýpur? Samfylkingin boðar himnaríki á jörð ef við göngum í ESB. Ekki minnist Samfylkingin einu orði á að þá missum við yfirráðin yfir fiskimiðum okkar sem eru einhver þau auðugustu í heimi. Það hefur aldrei gefist vel í sögunni að boða hinn endanlega og eina sannleika eins og Samfylkingin er að gera með því að vera ekki með önnur stefnumál fyrir okkur Íslendinga en að ganga í ESB og taka upp evru.

Sigurður Guðjón Haraldsson.