David Beckham
David Beckham
Nasser Al-Khelaifi, forseti franska stórliðsins Paris Saint-Germain, vill að enski knattspyrnumaðurinn David Beckham framlengi samning sinn við liðið en Beckham gerði aðeins hálfs árs samning sem rennur út eftir leiktíðina.

Nasser Al-Khelaifi, forseti franska stórliðsins Paris Saint-Germain, vill að enski knattspyrnumaðurinn David Beckham framlengi samning sinn við liðið en Beckham gerði aðeins hálfs árs samning sem rennur út eftir leiktíðina. „Við munum tala við hann eftir tímabilið. Sama hvað hann ákveður munum við styðja það en honum líður afskaplega vel í París og hreint út sagt viljum við halda honum,“ segir forsetinn.

Takist PSG að vinna deildina verður það fjórða landið sem Beckham tekst að vinna landstitil í en áður hefur hann gert það á Englandi, Spáni og í Bandaríkjunum. tomas@mbl.is