Jovan Zdravevski
Jovan Zdravevski
Undanúrslitin á Íslandsmóti karla í körfuknattleik halda áfram í kvöld þegar Snæfell tekur á móti Stjörnunni í Stykkishólmi klukkan 19.15. Verður þetta fyrsti leikur liðanna en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslitarimmuna um titilinn.

Snæfell hafnaði í 3. sæti Dominos-deildarinnar og sló Njarðvík út 2:1 í átta liða úrslitum. Stjarnan hafnaði í 4. sæti og sló Keflavík út 2:1 í átta liða úrslitunum. Stjarnan varð auk þess bikarmeistari á tímabilinu.

Stjarnan endurheimtir Jovan Zdravevski úr leikbanni sem hann fékk fyrir brottrekstur í Keflavík og tók hann bannið út í oddaleiknum á móti Keflavík.

kris@mbl.is