Volkswagen-fyrirtækið freistar þess að ná fullum yfirráðum yfir vörubílafyrirtækinu MAN. VW á sem stendur 75% hlutafjárins en vill það allt. Í þessu skyni hefur VW gert eigendum afgangs hlutafjárins kauptilboð, að sögn stjórnenda MAN.

Volkswagen vill bræða meira saman starfsemi MAN, eigin atvinnubíladeildar og sænska vörubílafyrirtækisins Scania, sem VW ræður. Markmiðið er að taka sætið sem stærsti þungaflutningabílasmiður Evrópu af Volvo og Daimler. Með algjörum yfirráðum á MAN gæti VW rennt fyrirtækinu með öllu saman inn í eigin starfsemi.

Stjórnir samþykki

Til að þessi áform nái fram að ganga þurfa bæði stjórn VW og stjórn MAN að samþykkja samkomulag sem gert yrði um yfirtökuna. Stefnt er að því að fá niðurstöðu í málið fyrir hluthafafund í MAN í byrjun júní nk.

agas@mbl.is