Benedikt Eyjólfsson
Benedikt Eyjólfsson
Þróun gengis krónunnar gagnvart Bandaríkjadal ræður því að Bílabúð Benna hefur lækkað verð á öllum nýjum Chevrolet-bílum. Lækkunin er mismunandi eftir tegundum en getur verið allt að 400 þús. kr. „Bílaflotinn þarf að endurnýjast.

Þróun gengis krónunnar gagnvart Bandaríkjadal ræður því að Bílabúð Benna hefur lækkað verð á öllum nýjum Chevrolet-bílum.

Lækkunin er mismunandi eftir tegundum en getur verið allt að 400 þús. kr.

„Bílaflotinn þarf að endurnýjast. Því er það ánægjulegt að fylgjast með styrkingu krónunnar undanfarið og geta látið neytendur njóta þess með lægra verði á bílum,“ segir Benedikt Eyjólfsson forstjóri Bílabúnaðar Benna, og bætir við að margir spennandi hlutir séu í deiglunni hjá Chevrolet um þessar mundir.

sbs@mbl.is