Alvarlegt umferðarslys varð á Reykjanesbraut í gærkvöldi, við íþróttahúsið í Kaplakrika í Hafnarfirði. Einn maður var fluttur á slysadeild. Læknir á vakt gat í gærkvöldi ekki gefið upplýsingar um líðan hans.

Lögregla fékk tilkynningu um slysið rétt fyrir klukkan hálfátta. Mjög harður árekstur varð þegar vélhjól og pallbifreið rákust saman.
Reykjanesbraut var lokuð í báðar áttir frá Flatahrauni að Lækjargötu í Hafnarfirði.