Vöxtur Newark er fjórði nýi áfangastaðurinn sem kynntur er á þessu ári, hinir eru Anchorage í Alaska, St. Pétursborg í Rússlandi og Zürich í Sviss.
Vöxtur Newark er fjórði nýi áfangastaðurinn sem kynntur er á þessu ári, hinir eru Anchorage í Alaska, St. Pétursborg í Rússlandi og Zürich í Sviss. — Morgunblaðið/Ernir
Ielandair mun hefja reglulegt áætlunarflug til Newark-flugvallar í New York hinn 28. október næstkomandi. Flogið verður fjórum sinnum í viku, á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum, samkvæmt frétt á heimasíðu Icelandair.

Ielandair mun hefja reglulegt áætlunarflug til Newark-flugvallar í New York hinn 28. október næstkomandi. Flogið verður fjórum sinnum í viku, á mánudögum, þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum, samkvæmt frétt á heimasíðu Icelandair.

Icelandair hefur flogið til JFK-flugvallarins í New York í rúm 60 ár og mun halda því áfram. Í sumar flýgur Icelandair 14 sinnum í viku, eða tvær ferðir daglega, til JFK.

„Við höfum náð að vaxa á undanförnum misserum á þessari flugleið og í vetur aukið tíðnina í 10 ferðir á viku og þá flogið tveimur flugvélum nánast samhliða yfir hafið og inn á JFK-flugvöllinn á vissum dögum. Við teljum rétt að færa hluta af þessari starfsemi yfir á hinn alþjóðaflugvöllinn á New York-svæðinu. Það skapar okkur og ferðaþjónustunni ný markaðstækifæri og eykur sveigjanleika og fjölbreytni í leiðakerfi okkar,“ er haft eftir Birki Hólm Guðnasyni, framkvæmdastjóra Icelandair, í tilkynningu.

Newark-flugvöllurinn er í raun í New Jersey-ríki, vestan við Hudson-ána sem rennur við Manhattan. Hann þykir henta vel fyrir Manhattan og ýmis svæði í suður-, vestur- og norðurhluta New York og New Jersey, en íbúafjöldi á New York-svæðinu er í heild um 25 milljónir. Flugumferð um Newark er tæplega 70% af umferðinni um JFK og 2012 fóru 34 milljónir farþega um hann.

Newark verður ellefti áfangastaður Icelandair í Norður-Ameríku. „Það er áhugavert að hefja flug á nýrri leið við upphaf vetraráætlunar og það er til marks um þá áherslu sem við leggjum á að jafna árstíðasveifluna í rekstrinum og auka starfsemi yfir vetrarmánuðina. Við væntum þess að þetta styrki jafnt tengiflug okkar yfir Norður-Atlantshafið og ferðaþjónustuna hér á landi,“ segir Birkir jafnframt.

Flugáætlun Icelandair fyrir árið 2013 er sú stærsta í sögu þess og um 15% umfangsmeiri en á síðasta ári. Newark er fjórði nýi áfangastaðurinn sem kynntur er á þessu ári, hinir eru Anchorage í Alaska, St. Pétursborg í Rússlandi og Zürich í Sviss.

Flugáætlun 2013
» Áætlun félagsins þetta ár er sú stærsta í sögu félagsins og um 15% umfangsmeiri en í fyrra.
» Fjórir nýir áfangastaðir hafa verið kynntir á þessu ári.
» Flugumferð um Newark er tæplega 70% af umferðinni um JFK og í fyrra fóru 34 milljónir farþega um hann.