Hvalfjarðargöngin eru fjölfarin.
Hvalfjarðargöngin eru fjölfarin.
Umferð um Hvalfjarðargöngin hefur aukist nokkuð að undanförnu. Var í janúar sl. 14% meiri en sama mánuð í fyrra. Búist er við að í ár fari ríflega 1,8 milljónir bíla um göngin, sem er svipað og í fyrra.
Umferð um Hvalfjarðargöngin hefur aukist nokkuð að undanförnu. Var í janúar sl. 14% meiri en sama mánuð í fyrra. Búist er við að í ár fari ríflega 1,8 milljónir bíla um göngin, sem er svipað og í fyrra. Árið 2008 fóru hins vegar meira en tvær milljónir bíla um jarðgöngin. Þau verða lokuð aðfaranætur næstu virka daga, vegna viðhalds og hreinsunar, en það eru hefðbundin vorverk hjá Speli, sem á göngin og rekur.