Cristiano Ronaldo , leikmaðurinn snjalli í liði Real Madrid, tryggði Portúgölum sigur gegn Króötum þegar liðin mættust í vináttuleik í Genf í Sviss í gærkvöld. Aðeins eitt mark leit dagsins ljós og skoraði Ronaldo það á 36.
Cristiano Ronaldo , leikmaðurinn snjalli í liði Real Madrid, tryggði Portúgölum sigur gegn Króötum þegar liðin mættust í vináttuleik í Genf í Sviss í gærkvöld. Aðeins eitt mark leit dagsins ljós og skoraði Ronaldo það á 36. mínútu leiksins eftir sendingu frá Silvestre Varela .

W illiam Gallas og David Bentley munu yfirgefa Tottenham þegar samningar þeirra við Lundúnaliðið renna út um næstu mánaðamót. Félagið tilkynnti þetta á vef sínum í gær. Gallas kom til Tottenham frá erkifjendunum í Arsenal fyrir þremur árum og spilaði 78 leiki, skoraði eitt mark og var af og til fyrirliði liðsins. Í vetur kom hann við sögu í 17 leikjum, öllum í úrvalsdeildinni, en Bentley gekk í raðir Tottenham frá Blackburn árið 2008.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir og Sunna Víðisdóttir , báðar úr GR, taka þátt í opna breska áhugamannamótinu í golfi sem fram fer á Machynys Peninsula-vellinum í Wales og hefst í dag.