[ Smellið til að sjá stærri mynd ]
Mark Ruffalo, Jesse Eisenberg, Woody Harrelson, Morgan Freeman og Michael Caine eru íslenskum kvikmyndagestum ekki ókunnir enda flugu þeir beint inn á topp íslenska kvikmyndalistans um helgina með mynd sinni Now You See Me .

Mark Ruffalo, Jesse Eisenberg, Woody Harrelson, Morgan Freeman og Michael Caine eru íslenskum kvikmyndagestum ekki ókunnir enda flugu þeir beint inn á topp íslenska kvikmyndalistans um helgina með mynd sinni Now You See Me . Myndin fjallar um hóp töframanna sem fremja bankarán í miðri sýningu í Las Vegas og dreifa ránsfengnum til áhorfenda. Auðvitað er þó ekki allt sem sýnist í fyrstu.

Þá kemur mynd feðganna Wills Smiths og Jadens Smiths, After Earth, ný inn í þriðja sæti listans.