Kvartett austurríska slagverksleikarans Claudios Spielers hyggst gleðja tónlistarunnendur á KEX-hosteli við Skúlagötu í kvöld með latíndjassi.
Kvartett austurríska slagverksleikarans Claudios Spielers hyggst gleðja tónlistarunnendur á KEX-hosteli við Skúlagötu í kvöld með latíndjassi. Með Spieler leika valinkunnir íslenskir tónlistarmenn, þeir Haukur Gröndal á saxófón, Ásgeir Ásgeirsson á gítar og Þorgrímur Jónsson á kontrabassa.