— Ljósmynd/Birkir Fanndal
Dettifoss er kraftmikill í leysingunum og sogar til sín fjölda ferðamanna. Þó er aðeins fært að honum eftir nýja veginum af Mývatnsöræfum.
Dettifoss er kraftmikill í leysingunum og sogar til sín fjölda ferðamanna. Þó er aðeins fært að honum eftir nýja veginum af Mývatnsöræfum. Mikil vinna hefur verið hjá landvörðum að stýra umferð fólks að fossinum, til að gæta öryggis þess og vernda viðkvæma náttúru. Jörð er blaut og þegar skaflarnir þiðna skilja þeir eftir sig djúpa krapapytti og stóra polla. Því þarf stöðugt að marka nýjar leiðir fyrir gesti.