Hasar- og gamanmyndin Pain and Gain er sú sem mestum tekjum skilaði í kassa kvikmyndahúsa hér á landi yfir helgina.
Hasar- og gamanmyndin
Pain and Gain
er sú sem mestum tekjum skilaði í kassa kvikmyndahúsa hér á landi yfir helgina. Í henni fer Mark Wahlberg með hlutverk fyrrverandi fanga sem ráðinn er til starfa á líkamsræktarstöð og ákveður að ræna valdamiklum og spilltum viðskiptavini stöðvarinnar með tveimur félögum sínum íturvöxnum og vitgrönnum. Grínmyndin
The Internship
var einnig vel sótt en í henni fara Vince Vaughn og Owen Wilson með hlutverk félaga sem fara í starfsþjálfun hjá Google.