Fasteignir 104 kaupsamningum var þinglýst 7.-13. júní á höfuðborgarsvæðinu.
Fasteignir 104 kaupsamningum var þinglýst 7.-13. júní á höfuðborgarsvæðinu. — Morgunblaðið/Ómar
Alls var 104 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 7. júní til og með 13. júní. Þar af voru 75 samningar um eignir í fjölbýli, 22 samningar um sérbýli og 7 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 3.

Alls var 104 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 7. júní til og með 13. júní. Þar af voru 75 samningar um eignir í fjölbýli, 22 samningar um sérbýli og 7 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 3.882 milljónir króna og meðalupphæð á samning 37,3 milljónir króna.

Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Suðurnesjum. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli. Heildarveltan var 258 milljónir króna og meðalupphæð á samning 21,5 milljónir króna.

Á vef Þjóðskrár Íslands kemur fram að á sama tíma var 16 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 6 samningar um eignir í fjölbýli, 5 samningar um sérbýli og 5 samningar um annars konar eignir. Heildarveltan var 358 milljónir króna og meðalupphæð á samning 22,4 milljónir króna.

Á sama tíma var 8 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um eignir í fjölbýli og 5 samningar um sérbýli. Heildarveltan var 162 milljónir króna og meðalupphæð á samning 20,2 milljónir króna.