Birta Það er alltaf sól hjá Kristínu Hermannsdóttur veðurfræðingi sem setur rigninguna ekki fyrir sig og kann best við sig í rólegu, skýjuðu veðri.
Birta Það er alltaf sól hjá Kristínu Hermannsdóttur veðurfræðingi sem setur rigninguna ekki fyrir sig og kann best við sig í rólegu, skýjuðu veðri. — Morgunblaðið/Eggert
Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Sumarið er komið fyrir löngu,“ segir Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur en margir landsmenn hafa látið veðrið trufla sig að undanförnu og lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir sumrinu um helgina.

Steinþór Guðbjartsson

steinthor@mbl.is

„Sumarið er komið fyrir löngu,“ segir Kristín Hermannsdóttir veðurfræðingur en margir landsmenn hafa látið veðrið trufla sig að undanförnu og lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir sumrinu um helgina.

Kristín sagði landsmönnum veðurfréttir í Ríkissjónvarpinu í fyrrakvöld og kvaddi þar með þann vettvang, að sinni í það minnsta. Hún tekur við starfi forstöðumanns Náttúrustofu Suðausturlands 1. júlí næstkomandi og flytur því með fjölskyldu sinni til Hafnar í Hornafirði, en þar ólst hún upp til 16 ára aldurs.

Kvart og þakkir

Starf veðurfræðings er fjölbreytt, að sögn Kristínar, og segir hún fjölbreytnina vera mest heillandi við vinnuna, en við þessi tímamót sakni hún fyrst og fremst góðs samstarfsfólks. „Það er nóg af veðri á Íslandi,“ áréttar Kristín. „Stundum skiptir of fljótt á milli og engir tveir dagar eru eins.“ Hún segir að standist veðurspá ekki hringi fólk oft í Veðurstofuna og kvarti. „Það vill alltaf sjá þetta gula á himninum og núna finnst fólki sumarið ekki vera komið.“

En veðurfræðingar fá ekki aðeins að heyra kvart og kvein. „Einstaka sinnum hringir fólk og þakkar fyrir sig,“ segir Kristín. Hún bætir við að það eigi einkum við eftir að fólk hafi haft samband og beðið um spá fyrir ákveðinn stað vegna til dæmis brúðkaups eða ættarmóts og góða spáin hafi ræst.

Kristín segir langerfiðast að spá um þoku. „Hún er svo þunn, er bara í neðsta laginu,“ segir hún og leggur áherslu á að ekki sé hægt að styðjast við reiknilíkön heldur verði að skoða gervitunglamyndir og fylgjast með því úr hvað átt vindurinn blæs. „Og svo allt í einu er hún farin þegar maður heldur að hún ætli að vera næstu sex tímana.“

Að sögn Kristínar er veðrið öðruvísi á Höfn en í Reykjavík. „Rigningardagarnir eru álíka margir á Höfn og í Reykjavík en það rignir bara svolítið meira á Höfn þegar það rignir.“ Hún setur það ekki fyrir sig. „Rólegheit finnast mér best,“ segir veðurfræðingurinn um veðrið. „Það er ekki gott að hafa mikla sól. Þá fer hún bara í augun á manni og veldur því að það koma síðdegisskúrir. Það er oft betra að hafa skýjað og rólegheit.“

KRISTÍN HERMANNSDÓTTIR

Hefur spáð í veðrið í 20 ár

„Mig langaði til þess að breyta til, prófa eitthvað annað,“ segir Kristín Hermannsdóttir, sem hefur verið viðloðandi Veðurstofu Íslands í yfir tuttugu ár, byrjaði sem aðstoðarmaður veðurfræðings á Veðurstofunni 1992, lauk prófi í veðurfræði frá Háskólanum í Bergen í Noregi 2001 og hefur verið veðurfræðingur á Veðurstofunni síðan og einnig í Sjónvarpinu undanfarin níu ár.