Mick Jagger
Mick Jagger
Hinir síungu rokkarar í Rolling Stones munu spila í tvo tíma á Glastonbury Festival í ár en þetta er í fyrsta skipti sem hljómsveitin kemur fram á hátíðinni.

Hinir síungu rokkarar í Rolling Stones munu spila í tvo tíma á Glastonbury Festival í ár en þetta er í fyrsta skipti sem hljómsveitin kemur fram á hátíðinni.

Hátíðin í ár verður í beinni útsendingu á netinu og í fyrsta skipti hægt að velja milli sviða á netinu og þannig ættu aðdáendum Rolling Stones og annarra hljómsveita sem koma fram á hátíðinni að vera kleift að fylgjast vel með.

Aðrar hljómsveitir sem koma fram í ár eru m.a. Arctic Monkeys, Nick Cave & The Bad Seeds en Nick Cave spilar einnig á Íslandi í sumar í gömlu herstöðinni í Keflavík. Eins koma Public Enemy og Elvis Costello fram á hátíðinni auk annarra.