Níels Maríus Blomsterberg fæddist í Reykjavík 15. janúar 1927. Hann lést á hjartadeild Landspítalans 9. júní 2013.

Foreldrar hans voru Frederik A. Hans Blomsterberg, fæddur í Helsingör 6. október 1898, d. 23. október 1949 og AnneLise Blomsterberg, fædd í Nörresundby 2. nóvember 1902, d. 14. mars 1997. Albróðir Maríusar var Hans Blomsterberg, f. 9. ágúst 1928 í Reykjavík, d. 8. september 2005. Hálfbræður Maríusar, samfeðra, eru: Bjarni Blomsterberg, f. 17. febrúar 1917 og Andrés Blomsterberg, f. 25. júní 1918, d. 16. apríl 1997. Maríus kvæntist 9. maí 1953 Maríu Þórhildi Óskarsdóttur, f. 18. júní 1931, d. 21. maí 2009. Foreldrar hennar voru Sesselja Þórðardóttir, f. á Gerðhömrum í Dýrafirði 11. desember 1892, d. 16. desember 1972 og Óskar Árnason, f. á Hvaleyri í Garðasókn 12. október 1894, d. 19. febrúar 1986. María átti tvo bræður og eina systur sem öll eru látin. Maríus og María eignuðust sex börn. Þau eru: 1) Emma Þórunn, f. 18. apríl 1950, gift Ómari Kristvinssyni, f. 9. maí 1950. Þau eiga þrjú börn, 7 barnabörn og 2 barnabarnabörn. 2) Óskar Árni, f. 17. október 1954, d. 1. janúar 1983. Óskar var í sambúð með Þórdísi Sigfúsdóttur, f. 3. júní 1964. Óskar átti 2 börn, 1 stjúpdóttur og 1 barnabarn. 3) Hans Pétur, f. 18. mars 1957, kvæntur Sigrúnu Hafsteinsdóttur, f. 30. desember 1959. Þau eiga 6 börn og 9 barnabörn. 4) Birgir Bogi, f. 8. nóvember 1960, kvæntur Bryndísi Halldóru Jónsdóttur, f. 4. mars 1961. Þau eiga 3 börn og 9 barnabörn. 5) Sesselja María, f. 29. september 1963, gift Gunnsteini Halldórssyni, f. 9. ágúst 1959. Þau eiga 2 börn og 1 barnabarn. 6) Sonur fæddur í nóvember 1965, lést fimm dögum síðar.

Maríus eða „Blommi“ eins og hann vildi gjarnan láta kalla sig, ólst upp í Reykjavík . Faðir hans rak sláturhús og kjötvinnslu að Klömbrum í Reykjavík sem nú er þekkt sem Klambratún við Kjarvalsstaði. Hann lærði þar, af lærimeistaranum föður sínum, kjötiðnina sem hann vann við alla sína starfsævi. Hann var einn af stofnfélögum Félags íslenskra kjötiðnaðarmanna (FÍK) árið 1947 og var gerður að heiðursfélaga árið 1987. Einnig var hann í sveinsprófsnefnd og prófdómari í iðninni til margra ára. Blommi starfaði á ýmsum stöðum við fagið en lengst af við kjötvinnslu Kron í Brautarholti, kjötvinnslu Goða við Kirkjusand og síðar við sína eigin kjötvinnslu, Kjöt & álegg, sem hann svo síðar seldi. Eftir það kom hann við á nokkrum stöðum, m.a. Meistaranum, uns hann lét af störfum, þá kominn á aldur.

Útför Maríusar verður frá Bústaðakirkju í dag, 24. júní 2013, kl. 13.

Pabbi okkar, ættarhöfðinginn, er sofnaður svefninum langa og verður nú lagður til hinstu hvílu við hlið mömmu.

Pabbi var litríkur, skondinn og stór karakter. En pabbi var umfram allt yndislegur og ljúfur og með risastórt hjarta, sem rúmaði alla hans ástvini og ekki síst þá sem að minna máttu sín. Það samferðafólk hans sem hann vissi að átti eitthvað minna af veraldlegum gæðum gat oft reitt sig á stuðning hans á einn eða annan hátt. Sjálfur var hann ekkert ríkur á fé, en hann átti nóg fyrir okkur og rúmlega það og þannig varði hann sínum auði. Að gefa þeim sem minna áttu.

Það er gott veganesti að alast upp við það að gleyma ekki þeim sem minna eiga og rétta hjálparhönd ef hægt er.

Pabbi var kröftugur maður og fór stundum hratt yfir, en ekki þegar kom að börnunum þá var nægur tími. Pabbi var sögumaður mikill og fannst ekkert leiðinlegt að gera góða sögu betri með leikrænum tilburðum, svipbrigðum ofl.

Pabbi var kjötiðnaðarmeistari af Guðs náð og var afar fær á sínu sviði og gífurlega metnaðargjarn fyrir hönd iðnarinnar. Þar voru fáir honum fremri.

En við megum til með að nefna eitt atriði sem hann var ekki jafn góður í. Hann var ekki besti ökumaður í heimi! Hann eignaðist sinn fyrsta bíl ekki fyrr en 47 ára gamall og var því ekki mjög vanur ökuþór. Oft fór hann með okkur í bíltúr og átti það til að keyra með hvítu punktalínurnar á milli dekkjanna. Þegar honum var bent á að drífa sig yfir á réttan vegarhelming þá glotti hann og sagði að þessar línur væru sérstaklega gerðar til þess að hafa á milli hjólanna. Þá kom fyrir að hann renndi yfir á rauðu ljósi, óvart að sjálfsögðu og þegar hann uppskar skammir og allt varð vitlaust í bílnum, var hann fljótur að svara og segja að rauði liturinn væri miklu fallegri en sá græni. Rautt væri nefnilega VALS-liturinn! Það þarf varla að taka fram að hann var mikill Valsari.

Pabbi elskaði óperutónlist og átti stórt safn af klassískri tónlist. Sú tónlist er ríkur partur af æsku okkar systkina.

Pabbi var með græna fingur og var alltaf að bæta og breyta garðinum og aldrei var garðurinn eins, tvö ár í röð. Nágrannarnir göntuðust oft með það að engu líkara væri að trén hans Blomma væru með tær því hann var ótrúlega duglegur við að færa trén sem sum voru ekki neinar smáspírur.

En pabbi fékk líka sinn skammt af sorginni. Ekkert fer eins illa með foreldri og að missa barn og það á eins sviplegan og ósanngjarnan hátt og í þessu tilfelli. Þann harm tókst honum í raun aldrei að yfirstíga. En með tímanum tókst honum að halda honum til hliðar, enda heldur lífið áfram og því ber að lifa á þann besta hátt sem maður getur þó að höggin séu þung. Það gerði hann.

Við viljum þakka þessum einstaka manni, sem pabbi okkar var, allt það sem að hann hefur gert fyrir okkur í gegnum tíðina. Alla hans velvild, umhyggju, öryggi og ást. En umfram allt þökkum við honum fyrir lífið sem hann gaf okkur, ásamt mömmu. Þau grófu minningar í hjörtu okkar.

Megi þau bæði hvíla í friði.

Við elskum ykkur að eilífu. Verið Guði geymd.

Emma, Hans,

Birgir og Sesselja.

mbl.is/minningar