Háar kröfur Tchenguiz-bræður krefja SFO um 300 milljónir punda.
Háar kröfur Tchenguiz-bræður krefja SFO um 300 milljónir punda.
Vincent Tchenguiz réði „reynda ísraelska leyniþjónustumenn“ til starfa fyrir sig þegar málaferli Serious Fraud Office (SFO) gegn honum stóðu yfir.

Vincent Tchenguiz réði „reynda ísraelska leyniþjónustumenn“ til starfa fyrir sig þegar málaferli Serious Fraud Office (SFO) gegn honum stóðu yfir. Þetta kemur fram í gögnum sem lögð voru fyrir dómstóla á Bretlandseyjum, samkvæmt því sem breska dagblaðið The Telegraph greinir frá.

Samkvæmt The Telegraph sýna gögnin að á tímabilinu frá mars 2011 allt fram til febrúar á þessu ári, naut Tchenguiz aðstoðar fyrirtækis að nafni Black Cube. Starfsmenn fyrirtækisins mynduðu nokkurs konar föruneyti kringum hann og fram kemur í frásögninni að sumir þeirra hafi búið heima hjá honum.

Fyrirtækið segist leggja stund á „skapandi leyniþjónustu,“ og hafi í sínum röðum fyrrverandi sérþjálfaða ísraelska leyniþjónustumenn.

Vitni hafa einnig haldið því fram að Tchenguiz hafi ætlað að gera kvikmynd um baráttu sína við SFO. Málið gegn honum og bróður hans, Robert Tchenguiz, sem snerti fall Kaupþings, rann út í sandinn í júní. Bræðurnir krefja breska ríkið nú um 300 milljónir punda, rúma 56 milljarða króna, í skaðabætur.

Móðurfélag Black Cube á í málaferlum við Tchenguiz-fjölskylduna vegna ógreiddra reikninga og samningsbrota. Eitt verkefna Black Cube var að komast að því hvaðan SFO hefði upplýsingar sínar um viðskipti bræðranna.

Avi Yanus, fjármálastjóri móðurfélags Black Cube sagði í yfirlýsingu að „Tchenguiz vildi hafa hóp af fólki í kringum sig og um langan tíma, sem næði meðal annars yfir þann tíma sem lögsóknin vegna Kaupþings stóð sem hæst. Starfsmenn Black Cube voru kjarninn í föruneyti hans. Margir af þeim bjuggu inni á heimili hans,“ er haft eftir Yanus í The Telegraph .