Rokksumarbúðarverkefninu Stelpur rokka! lýkur með lokatónleikum í húsnæði TÞM að Hólmaslóð 2 í dag kl. 17. Á tónleikunum munu átta hljómsveitir flytja frumsamin lög sem eru afrakstur mánaðarlangra rokksumarbúða fyrir stelpur á aldrinum 12 til 16 ára.

Í rokkbúðunum var boðið upp á hljóðfærakennslu, hljómsveitaæfingar, vinnusmiðjur um ýmis þemu tengd konum og tónlist auk tónleikaheimsókna frá frægum íslenskum tónlistarkonum. Stelpur rokka! er styrkt af Hlaðvarpanum - menningarsjóði kvenna, Kraumi tónlistarsjóð og Menningarráði Akureyrar.