Listakonan Ljúfir tónar Eivörar munu hljóma.
Listakonan Ljúfir tónar Eivörar munu hljóma. — Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Það verður sannkölluð tónlistarveisla á Græna hattinum á Akureyri um helgina. Valdimar treður upp ásamt hljómsveit á föstudagskvöld og hefjast tónleikarnir klukkan 22.
Það verður sannkölluð tónlistarveisla á Græna hattinum á Akureyri um helgina. Valdimar treður upp ásamt hljómsveit á föstudagskvöld og hefjast tónleikarnir klukkan 22. Á laugardags- og sunnudagskvöld mun færeyska álfadrottningin og listakonan Eivör Pálsdóttir vera með tónleika. Tónleikarnir á laugardagskvöld hefjast klukkan 22 en á sunnudagskvöld klukkan 21. Áhugasamir ættu að tryggja sér miða í tíma og er bæði hægt að nálgast miða á midi.is og í verslunum Eymundson.