Bergsveinn Ólafsson
Bergsveinn Ólafsson
Fjölnismenn gerðu það gott í heimsókn sinni á Selfossvöll í gærkvöldi í 1. deild karla í knattspyrnu. Þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu leikmenn Selfoss, 2:1. Þar með stungu Fjölnismenn sér upp í 5.

Fjölnismenn gerðu það gott í heimsókn sinni á Selfossvöll í gærkvöldi í 1. deild karla í knattspyrnu. Þeir gerðu sér lítið fyrir og unnu leikmenn Selfoss, 2:1. Þar með stungu Fjölnismenn sér upp í 5. sæti deildarinnar þar sem lið Selfoss var fyrir leikinn í gær.

Grindavík vann öruggan sigur á KF, 2:0, á Grindavíkurvelli og náðu þar með fjögurra stiga forskoti í efsta sæti deildarinnar.

Bergsveinn Ólafsson og Haukur Lárusson skoruðu mörk Fjölnis á fyrsta hálftíma leiksins. Sindri Snær Magnússon klóraði í bakkann snemma í síðari hálfleik en lengra komust leikmenn Selfoss ekki.