Glæsilegt Bolshoi-leikhúsið er tignarlegt en órói innan dyra.
Glæsilegt Bolshoi-leikhúsið er tignarlegt en órói innan dyra.
Öldur hefur ekki lægt í Bolshoi-ballettinum sögufræga í Moskvu, eftir sýruárásina sem listrænn stjórnandi hans varð fyrir í vetur að undirlagi dansara í hópnum.

Öldur hefur ekki lægt í Bolshoi-ballettinum sögufræga í Moskvu, eftir sýruárásina sem listrænn stjórnandi hans varð fyrir í vetur að undirlagi dansara í hópnum. Á þriðjudag tilkynntu menningaryfirvöld í Rússlandi óvænt að skipt yrði um forstjóra Bolshoi-leikhússins og er ætlunin að reyna að ná tökum á ófremdarástandi illdeilna og undirróðurs sem mun hafa ríkt innan veggja.

Að sögn The New York Times sat forstjóri hússins til þrettán ára þungbúinn á blaðamannafundi þar sem tilkynnt var um stjóraskiptin. Við af honum tekur Vladimir Urin, sem hefur verið hrósað fyrir að byggja upp næstvirtasta leikhús borgarinnar. Innanbúðarmenn segja hann eiga erfitt verk fyrir höndum í Bolshoi.