Fimmti ásinn. S-Allir
Norður | |
♠Á975 | |
♥4 | |
♦K86432 | |
♣106 |
Vestur | Austur |
♠62 | ♠G10843 |
♥87 | ♥93 |
♦D1095 | ♦G7 |
♣ÁD942 | ♣G753 |
Suður | |
♠KD | |
♥ÁKDG10652 | |
♦Á | |
♣K8 |
Suður spilar 7G dobluð.
Það var stórkostleg bylting í sagnvísindum þegar kóngurinn í trompi var tekinn í ásatölu og honum svarað sem slíkum. En byltingin á það til að éta börnin sín.
Hinir pólskættuðu New York-búar, Sam Lev og Jacek Pszczola (Pepsíkóla), spiluðu saman í opnu sveitakeppninni í Belgíu. Kerfið var Standard og því opnaði Pepsí í suður á 2♣, alkröfu. Lev svaraði jákvætt á 3♦ og Pepsí sagði 3♥.
Heldur klossuð byrjun, sem stafar af hinu bráðláta svari á 3♦. En Lev hélt ótrauður áfram að lýsa sínum spilum og sagði næst 3♠. Pepsí sagði 4♣ (fyrirstaða) og Lev 4♦. Nú var sagnrýmið á þrotum og Pepsí spurði um ása með 4G.
En hvað er tromp – tígull, hjarta eða spaði? Satt að segja koma allir litir til greina, en Lev valdi tígulinn og svaraði tveimur „ásum“ með 5♥. Pepsí átti greinilega von á svörtu ásunum, því hann stökk næst í 7G.