Makríll Krókabátar eru byrjaðir á makrílveiðum í Breiðafirði.
Makríll Krókabátar eru byrjaðir á makrílveiðum í Breiðafirði. — Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Guðni Einarsson gudni@mbl.is Makrílafli það sem af er árinu var orðinn um 14 þúsund tonn í gær, samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu. Fyrir réttu ári var búið að veiða um 32 þúsund tonn af makríl.

Guðni Einarsson

gudni@mbl.is

Makrílafli það sem af er árinu var orðinn um 14 þúsund tonn í gær, samkvæmt upplýsingum frá Fiskistofu. Fyrir réttu ári var búið að veiða um 32 þúsund tonn af makríl.

Halldór Kristinsson, skipstjóri á Sæhamri SH, byrjaði á makrílveiðum á þriðjudaginn var og fékk þá tvö tonn. Í fyrradag var veðrið ekki gott en í gær var hann kominn með hátt í tvö tonn þegar rætt var við hann um þrjúleytið. Hann er með fimm rúllur og 40 króka á hverri rúllu.

„Það er lítið að sjá hérna við landið,“ sagði Halldór þar sem hann var að veiðum 2-3 sjómílur undan Hellissandi. Vaðandi makríll hefur sést á Breiðafirði undanfarið. Þótt hann vaði þá er það ekki endilega veiðanlegt magn í byrjun vertíðar, að sögn Halldórs. Hann sagði að sjórinn sé kaldari nú en hann var á sama tíma í fyrra og það skýri líklega hvers vegna makrílvertíðin fer hægar af stað en þá.

„Þetta er bara að byrja. Ég held að það verði ekkert fjör í þessu fyrr en eftir þann tuttugasta,“ sagði Halldór. Þetta er fjórða sumarið sem hann stundar krókaveiðar á makríl.

Makríllinn hefur verið vænn að sögn Halldórs. Honum er landað í Sjávariðjuna á Rifi þar sem hann er flakaður og frystur til manneldis.

Fjórir krókabátar voru byrjaðir á makrílveiðum frá Rifi í gær, einir sex frá Ólafsvík og fjórir frá Stykkishólmi. Þá var verið að gera fleiri báta tilbúna til veiða og talsvert komið af aðkomubátum, að sögn Halldórs.