Valgerður Inga Hauksdóttir (Vallý) fæddist í Reykjavík 27. febrúar 1951. Hún lést á Landspítalanum, deild 11E, 5. júlí 2013.
Foreldrar hennar voru Garðar Haukur Georgsson, f. 8.2. 1927, d. 12.6. 1980 og Eyrún Sigríður Sigurðardóttir, f. 26.5. 1928, d. 14.2. 1969. Systkini Vallýjar eru Örn Grundfjörð, f. 25.8. 1947, maki: Erla Guðmundsdóttir, f. 7.12. 1950, Elísabet Hauksdóttir, f. 30.11. 1949, maki: Gestur Breiðfjörð Sigurðsson, f. 2.10. 1943, d. 23.3. 2004, Hugrún Björk Hauksdóttir, f. 26.11. 1953, maki: Bernhard Jóhannesson, f. 31.7. 1951, Sigurður Pétur Hauksson, f. 29.7. 1955, maki: Mai Tuyet Thi Bui, f. 23.10. 1983, Hjördís Hrönn Hauksdóttir, f. 14.8. 1956, maki: Jónas Jósteinsson, f. 15.5. 1956.
Guðjón Hafsteinn Guðmundsson (Gaui), f. 11.5. 1950 er eftirlifandi eiginmaður Vallýjar en þau giftust 20.4. 1969. Foreldrar Gauja voru hjónin Guðmundur Vernharð Lárusson, f. 12.7. 1926, d. 5.8. 1985 og Guðbjörg Rósa Guðjónsdóttir, f. 28.12. 1928, d. 3.5. 1999. Vallý og Gaui eignuðust þrjú börn, þau eru: 1) Rúnar Sigurður, f. 12.2. 1969, kvæntur Kristínu Kristjánsdóttur, f. 2.6. 1972, börn þeirra eru Alexandra Berg, f. 1991, Aníta Sif, f. 1996 og Eiður Atli, f. 2002. 2) Guðbjörg Rósa Guðjónsdóttir, f. 3.4. 1971, í sambúð með Gunnari Bergmanni Þorsteinssyni, f. 26.3. 1971, börn þeirra eru Guðjón Logi, f. 1989, Ísak Breki, f. 1998 og Baltasar Nói, f. 2006. 3) Rakel Dögg, f. 7.9. 1975, í sambúð með Gunnari Sigurðssyni, f. 14.8. 1975, börn þeirra eru Patrik Sigurður, f. 2000, Mikael Logi, f. 2006 og Adam Nóel, f. 2009.
Vallý ólst upp lengst af á Freyjugötunni í Reykjavík og bjó hún þar þegar hún kynntist Gauja. Vallý og Gaui byrjuðu búskap sinn í Reykjavík, fluttust þaðan til Grundarfjarðar, síðan til Ólafsvíkur og flytjast svo í Hafnarfjörð þar sem þau ólu börnin sín þrjú upp. Síðustu 15 árin hafa þau búið í Brekkuhvarfi í Kópavogi þar sem þau bjuggu sér draumaheimilið. Auk uppeldis- og heimilisstarfa vann Vallý m.a. við framleiðslustörf, ræstingar, dagmóðurstörf og fiskvinnslustörf. Einnig starfaði Vallý við verslunarstörf í Kringlunni í 10 ár. Vallý var alla tíð mikill dýravinur og hafði sérstakt yndi af hundum og hestum. Síðustu ár var Vallý meðlimur í Hundaræktunarfélagi Íslands og ræktaði hún maltese-hunda af mikilli alúð.
Útför Vallýjar fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju í dag, 12. júlí 2013, kl. 15.
Elsku hjartans Vallý mín, nú er okkar lífshlaupi lokið. Við byrjuðum lífið saman mjög ung, 16 og 17 ára gömul, og eignuðumst saman 3 yndisleg börn sem við erum mjög stolt af. Þú kenndir mér margt í lífinu. Það lýsir þér vel að þér fannst veraldleg gæði ekki skipta máli eins og þegar ég keypti dýru úlpuna á Þorláksmessu hjá Eggerti feldskera og ætlaði að gefa þér í jólagjöf. En þegar þú sást hana rakstu mig til baka að skila henni á aðfangadag jóla. Þetta er eitt af mörgum dæmum sem lýsir þér, veraldleg gæði eru ekki það sem skipta öllu máli í lífinu.
Takk elsku Vallý mín fyrir öll okkar ár saman. Hvíl þú í friði.
Þinn
Guðjón (Gaui).
Elsku mamma, ég kveð þig með miklum söknuði og trega en ég hugsa til þín með ást, hlýju og fallegum minningum. Ég vona að þú sért á fallegum stað með öllum hundunum þínum og að þér líði ofsalega vel verkjalaus og frjáls.
Þín dóttir,
Rósa.
Takk fyrir að reynast börnunum mínum vel og eigum við eftir að sakna þín sárt.
Gunnar Bergmann
Þorsteinsson.
Guð varðveiti og blessi fallegu minningu þína elsku Vallý mín.
Ég og krakkarnir mínir vottum ykkur innilega samúð okkar,
Guðjón, Rúnar, Rósa, Rakel og fjölskylda og megi Guð vera með ykkur á þessum erfiðu tímum.
Þín systir,
Elísabet (Elsa).
Í Ólafsvík unnum við Vallý saman í Salthúsinu, lögðum og rifum upp saltstæður af þorski af miklum móð. Taldi hún það ekki eftir sér að vinna um helgar þó hún væri með heimili og börn, henni þótti svo gaman. Við Jónas vorum mikið á heimili Vallýjar og Gauja, bæði fyrir vestan og í bænum, og yljum við okkur við þær minningar.
Elsku Vallý mín, mikið á ég eftir að sakna þín og allra símtalanna þar sem við ræddum pólitík og fleira og hlógum saman. Takk fyrir alla samveruna elsku systir. Við hittumst aftur síðar. Elsku Gaui, Rúnar, Rósa, Rakel og fjölskyldur, við Jónas sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Þín systir,
Hjördís (Hjödda).
Vinskapurinn var alltaf til staðar, hvort sem við vorum á kafi í barnauppeldi eða blómarækt, sem við stunduðum af kappi í mörg ár. Sjómannskonur hafa aðeins annað hlutverk en aðrar konur, á þær er lögð meiri ábyrgð og fleiri verkefni, þau verkefni sem sjómannskona leysti Vallý fullkomlega af hendi sem kemur fram í hversu vel gerð börnin hennar eru og hversu vel þau voru búin að koma sér fyrir í Brekkuhvarfinu. Vinir barnanna voru einnig vinir hennar, heimagangar hjá henni eins og þau væru hennar börn, barnabörnin voru þó hennar gimsteinar.
Þegar börnin voru farin að heiman og búin að stofna sitt eigið heimili tók við áhugamál sem henni var afar kært, hundar áttu hug hennar og tók hún áhugamál sitt alvarlega, rétt eins og barnauppeldi og heimilið, hún náði góðum árangri með hundana sína og vann til margra verðlauna á hundasýningum. Endalaus natni og umhyggja um vellíðan hundanna var eftirtektarverð. Síðustu misseri hefur Vallý systir mín verið mér nánari en nokkur annar. Eftir að ég greindist með krabbamein hefur hún verið mín stoð og stytta. Við fórum stundum samferða í krabbameinsmeðferðirnar okkar og þá var mikið spjallað og hlegið. Nú er komið að kveðjustund, hún er sár. Söknuður okkar sem eftir lifum er mikill.
Við kveðjum systur mína og mágkonu með ást og kærleika.
Guðjóni og öllum afkomendum þeirra sendum við hugheilar samúðarkveðjur.
Hugrún og Bernhard.
ég kveð þig nú með sorg í hjarta. Nú verður ekki hægt að slá á þráðinn í tíma og ótíma og bera undir þig allt sem brennur á hjarta mínu. Þú varst stoð mín og stytta í gegnum síðustu áratugi.
Þú tókst mig á sínum tíma undir þinn verndarvæng þó þú værir ekki mikið eldri en ég og alltaf gat ég leitað til þín. Þú varst fyrirmynd mín, enda ein sú heiðarlegasta og besta kona sem ég þekki, með stórt og gott hjarta.
Oft hlógum við saman en vorum ekki alltaf sammála um pólitík og ég reyni að brosa þegar ég hugsa um síðustu pólitísku uppákomuna hjá okkur. Og þú sjálfsagt brosir líka.
Þú veist elsku Vallý mín að ég passa Balta fyrir þig og ég geymi í hjarta mínu fallega minningu um þig elsku góða frænka mín besta.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(Vald. Briem)
Elsku Gaui, Rúnar, Rósa, Rakel og fjölskyldur, ég og fjölskylda mín sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Guðlaug (Gulla frænka).
Þórður (Doddi) Björnsson, Hafnarfirði.
Amma, þú varst besta amma í heimi, ég gæti ekki hugsað mér betri ömmu. Ég elska þig af öllu mínu hjarta, ég mun sakna þín ólýsanlega mikið. Ég vona að þú sért komin á betri stað, þar sem þú ert hlaupandi með hundunum þínum og í faðmi foreldra þinna.
Þinn
Ísak Breki.