Mettilraun Salsadansarar komu saman á Austurvelli í gær til að reyna að slá Íslandsmet í Rueda de Casino sem sett var í fyrra þegar 92 tóku þátt í hópdansinum.
Mettilraun Salsadansarar komu saman á Austurvelli í gær til að reyna að slá Íslandsmet í Rueda de Casino sem sett var í fyrra þegar 92 tóku þátt í hópdansinum. Þátttakendurnir voru 86 að þessu sinni og mettilraunin tókst því ekki en reynt verður aftur að slá metið að ári. SalsaIceland, dansskóli og félag áhugafólks um salsa, stóð fyrir viðburðinum.