Fyrirliðinn Hlynur Bæringsson
Fyrirliðinn Hlynur Bæringsson
Fjórir landsleikir við Dani í körfuknattleik eru á dagskrá hérlendis á næstu dögum. A-landslið þjóðanna leika tvo vináttulandsleiki. Í Garðabæ 25. júlí og í Keflavík 26. júlí. U-22 ára lið þjóðanna mætast einnig í þessari heimsókn.

Fjórir landsleikir við Dani í körfuknattleik eru á dagskrá hérlendis á næstu dögum. A-landslið þjóðanna leika tvo vináttulandsleiki. Í Garðabæ 25. júlí og í Keflavík 26. júlí. U-22 ára lið þjóðanna mætast einnig í þessari heimsókn. Þau leika einnig í Garðabæ 25. júlí og aftur 27. júlí.

Fjórir leikir bíða A-landsliðsins í ágúst í undankeppni EM 2015 gegn Rúmeníu og Búlgaríu. Leikið verður hér heima 13. og 16. ágúst. kris@mbl.is