Ótrúlegt, en satt. N-Enginn
Norður | |
♠K107 | |
♥G | |
♦ÁG6 | |
♣ÁKD1076 |
Vestur | Austur |
♠862 | ♠Á9 |
♥ÁKD10865 | ♥9742 |
♦-- | ♦109732 |
♣832 | ♣94 |
Suður | |
♠DG543 | |
♥3 | |
♦KD854 | |
♣G5 |
Raunveruleikinn er oft lygilegri en nokkur skáldskapur. Á lokasprettinum í úrslitaleik bandarísku öldungakeppninnar í Orlando átti tröllið Mike Passell að spila út gegn spaðaslemmu suðurs.
Það hafði verið stígandi í sögnum. Norður vakti á Standard-laufi, suður svaraði á spaða og Passell kom rólega inn á 2♥. Norður doblaði til að sýna sterk spil og austur lyfti í 3♥. Suður stökk í 4♠, Passell sagði 5♥ og norður 6♠.
Passell þótti sannfærandi hljómur í sögnum andstæðinganna og reyndi fyrir sér með litlu hjarta. Vonin var sú að makker kæmist inn til að spila tígli til baka. Það fór á annan veg. Sagnhafi fékk óvæntan slag á ♥G blinds og spilaði ♠K.
Komið að austri, Marc Jacobus. Hann drap á ♠Á og spilaði LAUFI. Hafði þó Passell komið út með út ♥8 og sett ♠8 á ásinn.
Ótrúlegt.