Birkir Sveinsson
Birkir Sveinsson
Allt útlit er fyrir að spilað verði í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina eða á sama tíma og þar er haldin hin árlega Þjóðhátíð sem alla jafna er mjög fjölmenn.

Allt útlit er fyrir að spilað verði í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina eða á sama tíma og þar er haldin hin árlega Þjóðhátíð sem alla jafna er mjög fjölmenn. Leikur ÍBV og FH í Pepsí-deild karla riðlast vegna þess að FH komst áfram í forkeppni Meistaradeildarinnar. Netmiðilinn Vísir.is hafði eftir mótastjóra KSÍ, Birki Sveinssyni, í gærkvöldi að leikurinn verði líklega í Eyjum á laugardeginum um verslunarmannahelgina þó ekki hafi verið gengið frá því formlega. kris@mbl.is