Vellauðug Lady Gaga er ekki á flæðiskeri stödd.
Vellauðug Lady Gaga er ekki á flæðiskeri stödd.
Tónlistarkonan Lady Gaga trónir á toppi lista tímaritsins Forbes yfir launahæstu, heimsfrægu manneskjurnar sem ekki hafa náð 30 ára aldri. Í fyrra var Gaga með litlar 80 milljónir dollara í tekjur, jafnvirð um 9,7 milljarða króna.
Tónlistarkonan Lady Gaga trónir á toppi lista tímaritsins Forbes yfir launahæstu, heimsfrægu manneskjurnar sem ekki hafa náð 30 ára aldri. Í fyrra var Gaga með litlar 80 milljónir dollara í tekjur, jafnvirð um 9,7 milljarða króna. Meirihluta tekna sinna hafði hún af tónleikaferðinni Born This Way Ball en tekjur af henni námu í fyrra um 168 milljónum dollara, um 20,3 milljörðum króna. Næstur á lista Forbes er tónlistarmaðurinn Justin Bieber en hann var með um 58 milljónir dollara í tekjur, um sjö milljarða króna.