Fögnuður Tíska á Skólavörðustíg á menningarnótt í Reykjavík.
Fögnuður Tíska á Skólavörðustíg á menningarnótt í Reykjavík.
Verslunareigendur á Skólavörðustíg ætla ekki að láta sitt eftir liggja og fagna menningarnótt í höfuðborginni með pomp og prakt næstkomandi laugardag.

Verslunareigendur á Skólavörðustíg ætla ekki að láta sitt eftir liggja og fagna menningarnótt í höfuðborginni með pomp og prakt næstkomandi laugardag.

Blásið verður til tískusýningar klukkan 16 á neðri hluta götunnar sem breytt verður í göngugötu í tilefni dagsins.

Fyrirsætur frá Elite sýna þar vandaða íslenska hönnun í bland við erlenda, svo sem fatnað, skart og fylgihluti.

Eftirtaldir aðilar taka þátt í atburðinum; Anna María design, Birna, Boutique Bella, Búðin, Gammur, Huld, húnoghún, IQ og María Lovísa.