Plötubúðir Verslunin 12 tónar var valin önnur helsta plötubúðin til að heimsækja af tónlistarsíðunni buzzfeed.com.
Plötubúðir Verslunin 12 tónar var valin önnur helsta plötubúðin til að heimsækja af tónlistarsíðunni buzzfeed.com. — Morgunblaðið/Árni Sæberg
Plötubúðin 12 tónar er fyrir löngu búin að vinna hug og hjarta flestra tónlistaráhugamanna á Íslandi enda skemmtileg og heimilisleg verslun sem þægilegt er að sækja heim og kaupa tónlist sem oft er ekki á boðstólum annars staðar.

Nú hefur verslunin fengið enn eina viðurkenninguna fyrir sérstöðu sína en það er frá tónlistarsíðunni buzzfeed.com. Aðstandendur síðunnar hafa nefnilega valið 12 tóna í annað sæti yfir þær 27 plötuverslanir sem allir tónlistaráhugamenn ættu að heimsækja á lífsleiðinni. Þeir segja verslunina litla en skemmtilega og góðan og skemmtilegan vettvang fyrir bæði tónlistarmenn og tónlistaráhugamenn.