Höfundar Einleikur Eyrúnar Óskar Jónsdóttur og Helga Sverrissonar, Doría, varð hlutskarpast í einleikjasamkeppni Act Alone-hátíðarinnar.
Höfundar Einleikur Eyrúnar Óskar Jónsdóttur og Helga Sverrissonar, Doría, varð hlutskarpast í einleikjasamkeppni Act Alone-hátíðarinnar. — Morgunblaðið/Ernir
Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir gunnhildur@mbl.is Einleikjahátíðin Act Alone fór fram á Suðureyri við Súgandafjörð, dagana 8.-11. ágúst síðastliðinn.

Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir

gunnhildur@mbl.is

Einleikjahátíðin Act Alone fór fram á Suðureyri við Súgandafjörð, dagana 8.-11. ágúst síðastliðinn. Hátíðin fagnaði tíu ára afmæli í ár og af því tilefni var blásið til handritasamkeppni þar sem þemað var íslenski sjómaðurinn.

Alls bárust 15 handrit í keppnina en verðlaunin féllu í hlut leikverksins Doría, eftir þau Eyrúnu Ósk Jónsdóttur og Helga Sverrisson.

„Leikritið fjallar um íslenskan sjómann sem týnist einn á hafi úti, á árabát frá skipinu sínu,“ segir Helgi í samtali við Morgunblaðið. „Þetta fjallar svona svolítið um það hver maður er, þegar maður er kominn út í auðnina, einn með sjálfum sér, þar sem eru engin önnur viðmið eða speglar önnur en maður sjálfur,“ bætir hann við. Ýmislegt fleira kemur síðan líka við sögu að sögn höfundar, svo sem hugrenningar sjómannsins um ástina, lífið, rétt og rangt og fleira.

Nafnið sótt í söguna

Kveikjan að verkinu, sem og nafnið, doría, sækja höfundar í söguna. Vísar það til portúgalskra smábáta sem einhverjir muna eflaust eftir hér við land. Fluttu Portúgalar slíka báta tugum saman víða um heim á stærri seglskútum framan af 20. öldinni, og gerðu út til veiða. Doríurnar sjálfar tóku hins vegar aðeins einn mann. Líf doríu-sjómannsins var því um margt erfitt og lentu ófáir þeirra í því að týnast eða fórust. Minna aðstæðurnar sem verk Eyrúnar og Sverris hverfist um um margt á aðstæður doríu-sjómannanna, þótt íslensk hetja hafsins eigi engu að síður í hlut.

Doría hefur ekki enn verið sett upp en verkið verður frumflutt á Act Alone einleikjahátíðinni að ári. Þar munu aðstandendur hátíðarinnar sjá um uppsetninguna.

Leikverk og sjónvarpsþættir í farvatninu

Doría er langt í frá fyrsta samstarfsverkefni þeirra Eyrúnar og Helga. Á meðal fyrri verka þeirra má nefna bókina L7 Hrafnar, sóleyjar og myrra auk samnefndrar kvikmyndar sem kom út árið 2011. Fleira er einnig á döfinni úr smiðju höfundanna.

„Í vor tókum við þátt í lítilli handritasamkeppni leikskáldahöfunda. Þar tókum við þátt með unglingaverkið Ferðin til himna , um óvenjulega hinstu ósk deyjandi móður, sem er nú til skoðunar hjá öðru af stóru leikhúsunum,“ segir Helgi, spurður út í hvort fleiri verk séu í sjónmáli úr smiðju tvíeykisins.

Þá vinna þau einnig að gerð heimildamyndaraðar fyrir sjónvarp sem ber niður víða. Segir þar af sex börnum, víða um heim, sem á einn eða annan hátt standa upp úr umhverfi sínu.

„Við fjöllum m.a. um indverskan dreng sem er yngsti skólastjóri í heimi en hann stofnaði sinn eigin skóla 9 ára, við fjöllum líka um ísraelskan strák sem missti fæturna í jarðsprengjuslysi og stofnaði í kjölfarið góðgerðasamtök,“ segir Helgi af efnistökum verkefnisins. Börn í Bólivíu, Þýskalandi og á Íslandi koma einnig við sögu. Hér á landi er sagt frá stúlku sem er lögblind og heyrnarlaus en er skáld og skrifar bækur.

Verðlaunastyrkurinn sem fylgdi sigri Doría á Suðureyri kemur því í góðar þarfir við að halda þessu síðasttalda verkefni áfram. Stefna aðstandendur á að ljúka því á næsta ári.