Infiniti Q30 er sagður sækja innblástur í vöðvabyggingu kattarins.
Infiniti Q30 er sagður sækja innblástur í vöðvabyggingu kattarins.
Infiniti hefur afhjúpað drög af nýju Q30-línunni, sem verður frumsýnd í Frankfurt í næsta mánuði.

Infiniti hefur afhjúpað drög af nýju Q30-línunni, sem verður frumsýnd í Frankfurt í næsta mánuði. Johan de Nysschen, forstjóri Infiniti, segir að Q30-línan ætti að höfða til kaupenda sem eru ungir í anda og að línan beri með sér sérstakan stíl ásamt miklum gæðum.

Nettur, rennilegur og heillandi

Þegar Infiniti kynnti Q50 árgerð 2014 kvað við nýjan tón í framleiðslunni og er hinn nýi Q30 hannaður í þeim anda. Einnig má sjá áhrif frá öðrum og eldri hugmyndabílum frá Infiniti á Q30 eins og Essence, Etherea og Emerg-e.

„Q 30 er nettur, rennilegur og heillandi,“ segir Alfonso Albaisa, stjórnandi hönnunardeildar Infiniti. Það má líkja bílnum við spretthart dýr af kattarætt sem er grannt og stígur létt til jarðar. Það er nánast eins og það fljóti þegar það sprettur úr spori. Því var horft til vöðvabyggingar slíks dýrs þegar bíllinn var hannaður.

agas@mbl.is