Sjötta spilið. A-AV
Norður | |
♠963 | |
♥KG5 | |
♦53 | |
♣KG1076 |
Vestur | Austur |
♠752 | ♠ÁDG8 |
♥96 | ♥D10 |
♦K962 | ♦ÁG84 |
♣D952 | ♣Á43 |
Suður | |
♠K104 | |
♥Á87432 | |
♦D107 | |
♣8 |
„Hann biður afsökunar á útspilinu, ekki á doblinu.“
Fimm spilum er lokið af átta í framlengingu Spingold og staðan enn í járnum. En svo dró til tíðinda. Austur (Bertheau) vakti á víðáttulaufi, suður (Jagniewski) kom inn á 1♥, vestur (Bessis) sagði pass og norður (Gawel) lyfti í 2♥. Bertheau doblaði til að sýna góða opnun og Jagniewski lyfti hindrandi í 3♥. Komið að Thomas Bessis í öðrum hring.
Bessis átti 5 punktum meira en hann hafði áður lofað og doblaði til sýna dýrðina. Allir pass og tromp út. Þar með fékk sagnhafi tíma til að sækja slag á lauf og tryggja níu slagi: 530 í NS.
„Svona er lífið,“ skrifaði David Burn á spjallið. „Oft er gott að trompa út gegn dobluðum bútum, en ekki alltaf.“
„Sorry for the lead,“ sagði Bessis, en minntist ekki á doblið. Harður nagli.