— Ljósmynd/Sigurður Ægisson
Hnúfubakur dansaði hressilega í sjónum suður af Hauganesi við Eyjafjörð í gær og heillaði hvalaskoðendur um borð í bát hvalaskoðunarfyrirtækisins Níelsar Jónssonar, þar sem augnablikið var fangað.

Fyrirtækið fagnar um þessar mundir tuttugu ára starfsafmæli og má því velta fyrir sér hvort hnúfubakurinn hafi með athæfinu verið að senda því afmæliskveðju.