Árni Ragnarsson
Árni Ragnarsson
Árni Ragnarsson, einn öflugasti leikmaður Dominos-deildarinnar í körfuknattleik síðustu tvö tímabil, leikur ekki hérlendis næsta vetur. Árni hefur ákveðið að fara í framhaldsnám til Bandaríkjanna.

Árni Ragnarsson, einn öflugasti leikmaður Dominos-deildarinnar í körfuknattleik síðustu tvö tímabil, leikur ekki hérlendis næsta vetur. Árni hefur ákveðið að fara í framhaldsnám til Bandaríkjanna.

Árni mun ekki heldur leika í háskólaboltanum því þar er hann ekki löglegur eftir að hafa leikið þar þegar hann var í grunnnámi fyrir nokkrum árum. Árni fer í nám í Tampa á Flórída og segist í samtali við netmiðilinn Körfuna stefna að því að æfa með skólaliðinu. Hann ætlar sér að leika hérlendis eftir heimkomuna að ári.

Árni er 25 ára gamall og skoraði 12 stig að meðaltali fyrir Fjölni á síðasta tímabili og tók að auki 6 fráköst að jafnaði. kris@mbl.is