Hið árlega opna hús Borgarleikhússins er haldið í dag frá kl. 13-16. Þá geta gestir og gangandi skoðað leikhúsið og séð brot af þeim fjölmörgu sýningum sem frumsýndar verða á leikárinu. Opið hús er orðið fastur liður í menningarlífi Reykvíkinga. Siðurinn hófst þegar Leikfélag Reykjavíkur flutti í Borgarleikhúsið fyrir 20 árum og hefur verið haldið í heiðri nær óslitið síðan. Borgarbúar kunna að meta daginn og flykkjast í leikhúsið til að kynna sér verkefni vetrarins. Aðsókn að opnu húsi hefur alltaf verið góð en þó aldrei meiri en fyrir ári þegar gestir voru yfir 10.000 talsins.
Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi í dag þegar leikhúsið dregur tjöldin frá nýju og glæsilegu leikári. Mary Poppins og dansarar Íslenska dansflokksins sýna atriði á Stóra sviðinu, Skoppa og Skrítla skemmta í forsal. Brot úr verkinu Rautt, Lalli töframaður og Sönglist verða á litla sviðinu. Opnar æfingar á Jeppi á Fjalli, Húsi Bernhörðu Alba og Óskasteinum og svo verða reglulegar skoðunarferðir yfir daginn þar sem fólk verður leitt um króka og kima leikhússins. Þar verður baksvið skoðað, búningageymslur, æfingasalir, förðunardeild, smíðaverkstæði og margt fleira.
Leikhússtjórinn, Magnús Geir ásamt öðru starfsfólki, mun bjóða upp á kaffi og ilmandi nýbakaðar vöfflur. Ratleikur verður vítt og breitt um forsal með veglegum verðlaunum.
Ungir aðdáendur geta stillt sér upp með Skoppu og Skrítlu, Mary Poppins, Bert og sóturum.
Veislustjóri er Halldór Gylfason. Karl Olgeirsson og félagar spila og Jóhann Sigurðarson, Hallgrímur Ólafsson, Vox feminae og fleirir syngja leikhúsperlur. Auk þess verða ýmsar óvæntar uppákomur því leikhúsið getur sprottið fram alls staðar.