Þórunn Kristjánsdóttir thorunn@mbl.is Dregið hefur úr áfengis- og vímuefnaneyslu unglinga. Þetta kemur fram í Rannsókn á vímuefnanotkun framhaldsskólanema á Íslandi árið 2013, sem Rannsóknir og greining við Háskólann í Reykjavík framkvæmdu.

Þórunn Kristjánsdóttir

thorunn@mbl.is

Dregið hefur úr áfengis- og vímuefnaneyslu unglinga. Þetta kemur fram í Rannsókn á vímuefnanotkun framhaldsskólanema á Íslandi árið 2013, sem Rannsóknir og greining við Háskólann í Reykjavík framkvæmdu.

Vímuefnaneysla hefur minnkað gríðarlega meðal unglinga í efstu bekkjum grunnskóla undanfarin 15 ár. Þá hefur hún einnig minnkað verulega meðal nemenda í framhaldsskólum frá árinu 2000. Til samanburðar er ölvunardrykkja nemenda, 16 og 17 ára í framhaldsskólum í ár, 2013 um 35%, en árið 1998 var hún 42% í 10. bekk.

Stærsta stökkið í neyslu verður þegar einstaklingur hefur nám í framhaldsskóla. Í lok 10. bekkjar sögðust 5% unglinga hafa orðið ölvuð síðustu 30 daga en þegar komið var í 1. bekk í framhaldsskóla var hlutfallið komið í 35%. Þá höfðu einnig fleiri prófað marijúana milli skólastiga; 7% í 10. bekk en 15% í framhaldsskóla.

Þrátt fyrir að dregið hafi úr neyslu hefur hlutfall þeirra sem hafa prófað marijúana einu sinni eða oftar staðið í stað, 22% árið 2013.

Þarft að breyta hugarfari 4

Áfengis- og vímuefnaneysla
» Ölvunardrykkja 16 og 17 ára nemenda í framhaldsskólum 2013 var 35%, en árið 1998 var hún 42% meðal nemenda í 10. bekk.
» 22% ungmenna höfðu prófað marijúana árið 2013.