Guðmundur Sigurðsson
Guðmundur Sigurðsson
Guðmundur Sigurðsson, organisti Hafnarfjarðarkirkju, kemur fram á hádegistónleikum í kirkjunni í dag kl. 12. Tónleikarnir verða um 30 mín. að lengd.
Guðmundur Sigurðsson, organisti Hafnarfjarðarkirkju, kemur fram á hádegistónleikum í kirkjunni í dag kl. 12. Tónleikarnir verða um 30 mín. að lengd. Guðmundur mun leika á bæði orgel kirkjunnar en eins og tónlistarunnendur vita búa þau yfir ólíkum karakter. Á efnisskránni eru orgelverk eftir Friðrik Bjarnason (1880-1962) og Johann Sebastian Bach (1685-1750). Eftir Friðrik leikur Guðmundur Intrada, Elegíu og Prelúdíu í e-moll og m.a. Fantasíu í c-moll eftir Bach.