Of mikið Ekki gott að fara fram úr sér.
Of mikið Ekki gott að fara fram úr sér.
Framfarir, hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara, hefur það markmið að styðja við bakið á langhlaupurum á Íslandi með fræðslu og viðburðum. Fræðslufundir Framfara þetta haustið verða haldnir í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal við Engjaveg.

Framfarir, hollvinafélag millivegalengda- og langhlaupara, hefur það markmið að styðja við bakið á langhlaupurum á Íslandi með fræðslu og viðburðum. Fræðslufundir Framfara þetta haustið verða haldnir í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal við Engjaveg. Í kvöld, þriðjudag, kl. 20 verður fundur með yfirskriftinni: Hljópstu fram úr þér? Þar ætlar Róbert Magnússon, sjúkraþjálfari að fara yfir helstu þætti er snúa að meiðslum hlaupara. Sjónunum verður ekki síður beint að forvörnum og þeim leiðum sem fara má til að sporna gegn álagstengdum meiðslum. Nánar á hlaup.is