Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði för ökumanns í umdæminu við hefðbundið eftirlit um seinustu helgi. Samkvæmt upplýsingum lögreglunnar tilkynnti ökumaðurinn, sem var kona á þrítugsaldri, lögreglumönnum samstundis að hún væri svipt ökuréttindum.

Af henni var megn kannabislykt og við líkamsleit á lögreglustöð, sem hún heimilaði, fundust tveir pokar með amfetamíni í buxnavasa hennar. Í bílnum sem hún ók fundust fimm grömm af kannabisefnum. Sýnatökur staðfestu að hún hafði neytt amfetamíns, kókaíns og kannabis.

Í framhaldi fóru lögreglumenn í húsleit á heimili konunnar vegna gruns um að þar færi fram fíkniefnasala. Þar voru fyrir karl og önnur kona, einnig á þrítugsaldri. Lögreglumenn fundu töluvert magn af fíkniefnum og áhöld til fíkniefnaneyslu og pökkunar fíkniefna. Einnig fundust minnisbækur með meintum skuldalistum, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar. Fíkniefnin voru falin víðs vegar í húsnæðinu.