Nýr BMW 428i Coupe xDrive, nýr BMW 525d xDrive og nýr BMW 320d xDrive Grand Turismo verða frumsýndir á BMW-sýningu næstkomandi laugardag í húsakynnum BL við Sævarhöfða í Reykjavík.
Að sögn Lofts Ágústssonar, markaðsstjóra BL, verður stjarna sýningarinnar nýr og glæsilegur tveggja hurða BMW 428i Coupe.
„Nýi fjarkinn er að mestu smíðaður á álgrind eins og 3-línan en er bæði breiðari, lægri og lengri eins og gjarnt er um sportbíla. Með xDrive tölvuvæddu fjórhjóladrifi, 8 gíra sjálfskiptingu og vél sem er 245 hestöfl er hröðunin frá 0 í 100 km 5,8 sek. Nýi 428i Coupe-bíllinn verður sýndur í sérstakri sportútgáfu með ríkulegum búnaði,“ segir Loftur.
BMW 525d xDrive er endurbætt útgáfa af 5-línunni sem er næststærsta útgáfan í fólksbílalínunni frá BMW. Nýr BMW 525d xDrive er eins og nafnið bendir til með fjórhjóladrifi og 218 hestafla dísilvél sem notar einungis fimm lítra af eldsneyti í langkeyrslu. BMW 320d xDrive Grand Turismo er ný útgáfa í 3-línunni með mikið rými fyrir farþega og farangur. Nýr Grand Turismo er með tveggja lítra dísilvél, 184 hestöfl og eldsneytiseyðslu allt niður í 4,5 lítra á hundraðið í langkeyrslu.
agas@mbl.is