Skiptum á félaginu L-Investments, sem var í eigu færeyska fjárfestisins Jákups á Dul Jacobsen, stofnanda Rúmfatalagersins, er lokið og námu heildarkröfur í búið 31,1 milljarði króna. Þrjár milljónir fengust upp í kröfur eða um 0,0095%. Þetta kemur fram í Lögbirtingablaðinu.
Félagið var stofnað árið 1995 undir nafninu Lagerinn. Árið 2010 var nafni félagsins breytt í L-Investments en félagið hefur ekki skilað ársreikningum síðan 2005.
Lagerinn átti og rak Rúmfatalagersverslanirnar hér á landi, auk 40 JYSK verslana í Kanada, Eystrasaltslöndunum, Búlgaríu, Rúmeníu og Færeyjum. Þá átti félagið verslanirnar The Pier á Íslandi, Bretlandi og Lettlandi og ILVU verslanir á Íslandi, Danmörku og Svíþjóð.