Skilanefnd Kaupþings hefur hafið vinnu við að selja Arion banka. Unnið er að ráðningu utanaðkomandi ráðgjafa og áhugasamir fjárfestar hafa þegar haft samband og sýnt Arion áhuga, að því er fram kemur í frétt á vef Bloomberg-fréttaveitunnar í gær.

Haft er eftir Jóhannesi Rúnari Jóhannssyni lögmanni sem á sæti í skilanefndinni að ákvörðunin hafi verið tekin nýverið og undirbúningsvinnan sé hafin.

Hann bætir því við að áhugasamir fjárfestar hafi þegar sett sig í samband við skilanefndina. Það sé því ljóst að menn sýni eigninni áhuga.

Jóhannes tekur hins vegar fram í viðtalinu, sem var tekið í Lundúnum, að skilanefnd Kaupþings hafi ekki enn hafið formlegt söluferli.