Múlagöng verða lokuð í þessari viku vegna vinnu verktaka í þrjár nætur, þ.e. aðfaranætur miðvikudags til föstudags, frá kl. 23.00 og til kl. 06.30, segir í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Tekið er fram að viðbragðsaðilar geta farið um göngin án tafa þótt lokun standi yfir. Vegagerðin vonar að vegfarendur taki þessu vel og sýni ýtrustu aðgát við akstur meðan á framkvæmdum stendur, fyrir og eftir lokanir.