Barátturfundur Mikill hugur var á baráttufundi kennara í Iðnó. Kennarar eru óánægðir með kjör sín og benda á að viðmiðunarstéttir innan BHM fái allt að 20% hærri laun en kennarar. Þetta sagði kennari sem tók til máls á fundinum vera áhyggjuefni og velti fyrir sér hvers vegna kennarar hefðu dregist aftur úr.
Barátturfundur Mikill hugur var á baráttufundi kennara í Iðnó. Kennarar eru óánægðir með kjör sín og benda á að viðmiðunarstéttir innan BHM fái allt að 20% hærri laun en kennarar. Þetta sagði kennari sem tók til máls á fundinum vera áhyggjuefni og velti fyrir sér hvers vegna kennarar hefðu dregist aftur úr. — Morgunblaðið/Styrmir Kári
Jón Pétur Jónsson Gunnar Dofri Ólafsson Mikill hugur var á baráttufundi grunnskólakennara sem fór fram í Iðnó í gærkvöldi. Um 500 manns komu þar saman og þurftu margir að standa utandyra. Ljóst er að kennarar eru mjög óánægðir með launakjör sín.

Jón Pétur Jónsson

Gunnar Dofri Ólafsson

Mikill hugur var á baráttufundi grunnskólakennara sem fór fram í Iðnó í gærkvöldi.

Um 500 manns komu þar saman og þurftu margir að standa utandyra. Ljóst er að kennarar eru mjög óánægðir með launakjör sín. Þeir segja launin vera tímaskekkju sem verði að leiðrétta.

Í lok fundarins voru greidd atkvæði um það atriði sem kennarar vilja leggja áherslu á í komandi kjaraviðræðum, sem er hækkun launa. Fram kom í máli fundarmanna að kennarar eru mjög ánægðir í sínu starfi en þeir segja launin óboðleg.

Tilbúin í harkalegar aðgerðir

Hulda María Magnúsdóttir, sem kom að skipulagningu fundarins, var önnur á mælendaskrá í gærkvöldi. Hún segir að mætingin hafi farið fram úr sínum björtustu vonum og hún sýni að kennarar séu reiðubúnir að standa upp og taka skrefið í átt að breytingum.

„Aðilar BHM með sambærilega menntun og kennarar, fimm ára háskólanám, fá rúmlega 20% hærri laun en grunnskólakennarar. Þetta eru okkar samanburðarstéttir þannig að maður veltir fyrir sér af hverju kennarar hafa dregist svona mikið aftur úr.“

Hún benti á að í lok febrúar yrðu samningar grunnskólakennara lausir. Því væri mikilvægt að halda dampi í allan vetur og minna á kröfur kennara.

Hulda María tók fram að hún væri tilbúin að fara í harkalegar aðgerðir til að sýna fram á það hvað það þýddi fyrir samfélagið ef kennarar legðu niður störf. Hún segist víða mæta skilningsleysi; fólk hafi meðal annars haldið því fram að allir geti kennt og ef kennarar vilji fá hærri laun þá eigi þeir einfaldlega að finna sér aðra vinnu.

Að mygla í banka

Hulda María segir að kennarar sinni ekki bara einhverri gæslu. Þeir sinni lögbundinni þjónustu og geri það mjög vel.

Hún sagði að grunnlaun sín væru 331 þúsund kr. á mánuði, en hún tekur alla aukavinnu sem henni býðst. Hulda María, sem er 33 ára einstæð móðir, segist vera að íhuga að flytja aftur heim til móður sinnar.

„Þetta er ekki lagi,“ sagði hún svo í kjölfarið við fögnuð viðstaddra.

Hún greindi frá því að hún hefði áður unnið í banka. Þar hefði hún hins vegar verið að mygla í starfi. Sú vinna væri ekki nokkurrar fjárhæðar virði.

Skilur ekki hvers vegna kennarar eru svona lítils metnir

Hún skilur ekki hvers vegna grunnskólakennarar séu metnir lægra heldur en aðrar háskólamenntaðar stéttir. Spurningin sé því sú, hvað kennarar ætli að taka þessu lengi. Þeir þori vart að ræða launin sín opinberlega, en þeir séu allir sammála um það að starfið sé frábært og gefandi.

Hulda María segist starfa sem kennari því hún telji sig skipta máli í lífi nemenda sinna. Það sé svo margt sem gefi starfinu gildi – þessir litlu sigrar.

„Ég er sérfræðingur á mínu sviði og ég vil fá laun í samræmi við það. Það er ekkert ósanngjarnt við það.“

Launin eru tímaskekkja

Valgerður Eiríksdóttir, kennari í Fellaskóla, tók í svipaðan streng og Hulda María.

Hún sagðist upplifa fundinn á þann veg að nú væri eitthvað að fara að gerast. Það sé óralangt síðan kennarar hittust á svona baráttufundi.

Hún sagði að barátta kennara hefði verið löng og ströng, en átta ár eru liðin frá því síðasti samningur tók gildi.

Hún hvatti forystuna til að standa vörð um réttindi kennara. Laun kennara sagði hún tímaskekkju sem yrði að leiðrétta.

Hulda benti jafnframt á að nám og álag á kennara hefði aukist undanfarin ár en að launin hefðu staðið í stað.